Landsréttarmálið tekið fyrir í febrúar

Munnlegur málflutningur í landsréttarmálinu fyrir yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu verður 5. …
Munnlegur málflutningur í landsréttarmálinu fyrir yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu verður 5. febrúar 2020. mbl.is/Hallur Már

Munnlegur málflutningur í landsréttarmálinu fyrir yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu fer fram 5. febrúar 2020. Þetta kemur fram í bréfi sem málsaðilar fengu í dag og RÚV greinir frá. 

Í bréfinu kemur fram að málsaðilar hafa til 4. febrúar að skila gögnum í málinu. Málflutningur verður daginn eftir, 5. febrúar, fyrir hádegi. 17 dómarar eru skipaðir í málinu. 

Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í mars að skip­un til­tek­ins dóm­ara við Lands­rétt hefði falið í sér brot gegn grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu og var ríkið dæmt til að greiða 15 þúsund evr­ur í máls­kostnað. Stjórn­völd áfrýjuðu dómn­um en í síðustu viku ákvað yf­ir­deild Mannréttindadómstólsins að taka málið fyr­ir. 

Afar sjaldgæft er að yfirdeild dómstólsins taki upp mál sem neðri deildin hefur fjallað um, eða aðeins í um fimm prósentum tilvika. 

Málsmeðferð gæti tekið á bil­inu eitt til tvö ár og hefur stjórn dóm­stóla­sýsl­unn­ar ít­rekað fyrri yf­ir­lýs­ing­ar um nauðsyn þess að fjölga dómur­um við Lands­rétt, sérstaklega á meðan niðurstöðu yfirdeildar er beðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert