322 milljónir í sektir vegna umferðarlagabrota

Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á Norðurlandi vestra stöðvaði í gær ökumann sem ók bifreið sinni á 170 km/klst. á þjóðvegi 1 í Blönduhlíð í Skagafirði, en þar er hámarkshraðr 90 km/klst.

Að sögn lögreglu þurfti ökumaðurinn að greiða 240.000 kr. sekt á vettvangi og honum var gert að hætta akstri bifreiðarinnar og þurfti farþegi bifreiðarinnar að taka við. Um erlendan ferðamann var að ræða.

Lögreglan á Norðurlandi vestra segir í færslu á Facebook að hún hafi verið með mjög öflugt umferðareftirlit það sem af sé ári og 1. september hafi kærur vegna umferðarlagabrota verið 5.399 og af því voru 5.077 vegna hraðaksturs. Eru þetta sambærilegar tölur og fyrir árið 2018, en það ár fækkaði umferðaróhöppum í umdæminu um 26% frá árinu á undan. 

Skila 77 milljónum í ríkissjóð

Þá segir að álagðar sektir vegna umferðarlagabrota á fyrstu átta mánuðum ársins hjá embættinu séu alls rúmar 322 milljónir króna en rekstrarframlag ríkisins til embættisins á sama tímabili er u.þ.b. 245 milljónir króna. „Embætti lögreglustjórans á Norðurlandi vestra er því að skila 77 milljónum í ríkissjóð á umræddu tímabili, sem er vel, að ógleymdum þeim sparnaði sem fækkun umferðarslysa hefur í för með sér sem er gríðarlegur og er í raun vart hægt að meta til fjár.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert