Framtíð handritanna rædd

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ane Halsboe-Jørgensen, menntamálaráðherra Danmerkur, …
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ane Halsboe-Jørgensen, menntamálaráðherra Danmerkur, funduðu um framtíð handritanna í Kaupmannahöfn í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, fundaði í Kaupmannahöfn í dag með Ane Halsboe-Jørgensen, menntamálaráðherra Danmerkur, þar sem Lilja lýsti yfir áhuga Íslendinga á að endurskoða skiptingu handrita, m.a. úr safni Árna Magnússonar, en um 700 íslensk handrit eru enn varðveitt í Danmörku. 

Í síðasta mánuði veitti ríkisstjórnin menntamálaráðherra samþykki til þess að hefja viðræður við Dani um endurheimt íslenskra handrita úr Árnastofnun í Kaupmannahöfn. 

Undirbúa stofnun samráðsnefndar um menningarverðmæti

Ráðherrarnir sammæltust um að hefja undirbúning að stofnun samráðsnefndar um sameiginleg menningarverðmæti þjóðanna. Nefndin mun fá það verkefni að rýna og efla samstarf þjóðanna á þessu sviði, móta tillögur að framtíðarfyrirkomulagi um varðveislu þeirra handrita sem nú eru í Danmörku, huga að því hvernig þjóðirnar geti stutt hvor aðra í ræktun móðurmála á tímum alþjóðavæðingar og hvernig nýta megi sameiginlegan menningararf Íslands og Danmerkur á þeirri vegferð.

„Við áttum uppbyggilegan fund sem ég vona að beri góðan ávöxt í framtíðinni. Það hefur orðið viðhorfsbreyting á þeim tæpu 50 árum sem liðin eru frá því að fyrstu handritunum var skilað heim til Íslands – bæði hér í Danmörku og heima á Íslandi. Ég tel mikilvægt á þessum tímapunkti að við ræðum framtíð handritanna og fagna því að Danir séu reiðubúnir til viðræðna,“ er haft eftir Lilju í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Rúnar Leifsson sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Gottskálk Jensson lektor …
Rúnar Leifsson sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Gottskálk Jensson lektor í handritafræðum, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Páll Magnússon þingmaður og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, skoða handrit frá 12. öld í Árnasafni í Kaupmannahöfn. Ljósmynd/Stjórnarráðið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert