Könnunarsafninu lokað í næsta mánuði

Fjölskylda geimfarans Neil Armstrong afhjúpaði minnismerki utan við Könnunarsafnið sumarið …
Fjölskylda geimfarans Neil Armstrong afhjúpaði minnismerki utan við Könnunarsafnið sumarið 2015. Ljósmynd/Könnunarsafnið

Vegna fjárhagserfiðleika verður Könnunarsafninu á Húsavík lokað í næsta mánuði og hefur húsnæði þess verið sett á sölu. Örlygur Hnefill Örlygsson, safnstjóri safnsins, segir í samtali við mbl.is að hann sé staðráðinn í að opna safnið á ný síðar.

„Þetta er áfall en þetta er því miður óumflýjanlegt,“ segir Örlygur. „Það er einfaldlega búið að vera erfitt fjárhagslega. Við höfum verið að berjast í bökkum með þennan rekstur okkar og við ráðum ekki við að halda þessu húsi lengur. En ég hef hins vegar sennilega aldrei verið eins staðráðinn í neinu í lífinu og að koma þessu safni upp aftur.“

Örlygur segir að verið sé að skoða hvaða leiðir séu færar til þess að opna Könnunarsafnið á nýjan leik og að margir hafi boðist til að hjálpa til við að safna fyrir því að svo megi verða. „Ég mun koma Könnunarsafninu upp aftur. Þó að blási á móti nú er ég staðráðinn í að láta þessa flottu sögu ekki enda ofan í kössum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert