Stálu lyfjum, peningum og áfengi

mbl.is/Eggert

Tilkynnt var um innbrot í húsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á föstudag en húsráðandi hafði verið fjarverandi um nokkurra daga skeið en þegar hann kom heim sá hann ummerkin og sá að ýmislegt hafði verið tekið.

Virðist sá eða þeir óboðnu gestir sem þar voru á ferð hafa komist inn um baðherbergisglugga. Meðal þess sem var stolið var áfengi, sígarettur, lyf og á þriðja tug þúsunda í reiðufé. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki.

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af um helgina vegna gruns um ölvunarakstur viðurkenndi að hafa neytt áfengis áður en hann settist undir stýri. Jafnframt kom í ljós að hann hafði verið sviptur ökuréttindum ævilangt og var þetta í það minnsta í þriðja skipti sem hann hafði verið stöðvaður frá því að hann var sviptur.

Annar ökumaður sem tekinn var fyrir hraðakstur reyndist einnig undir áhrifum fíkniefna að því er sýnatökur á lögreglustöð sýndu. Einn ökumaður til viðbótar var tekinn úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur og annar ók sviptur ökuréttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert