„Heilsu“ rafrettur bannaðar

Algengt er orðið að sjá fólk með rafrettur hér á …
Algengt er orðið að sjá fólk með rafrettur hér á landi og víðar. mbl.is/​Hari

Neytendastofa vill að gefnu tilefni minna á að það er bannað að selja einnota rafrettur, hylki eða áfyllingar fyrir rafrettur sem gefa til kynna að varan hafi heilsubætandi eiginleika, lækningamátt, eða gefi aukinn lífsþrótt. Neytendastofa hefur þegar haft merkingar á vöru til skoðunar sem gefa í skyn að um „heilsu“ áfyllingu fyrir rafrettur sé að ræða.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Neytendastofu.

Þar segir enn fremur að vara megi ekki innihalda vítamín, koffín eða önnur efni sem gætu gefið til kynna að varan væri heilsusamleg eða orkugefandi.

Neytendastofu hafa borist upplýsingar um að í Evrópuríkjum hafi verið markaðssettar rafrettur og áfyllingar sem reyndust innihalda E-vítamín.

E-vítamín fannst einnig í þeim vökvum sem rannsakaðir voru vegna öndunarfæraveikinda notenda rafrettna í Bandaríkjunum og ekki hefur verið útilokað að það tengist veikindunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert