Sætta sig ekki við skattabreytingar sem veikja velferðarkerfið

mbl.is/Hjörtur

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands segist aldrei munu sætta sig við skattkerfisbreytingar sem lág- og millitekjufólk greiði sjálft með veikara velferðarkerfi, verri innviðum, notendagjöldum og auknum nefsköttum. „Við viljum sanngjarnt skattkerfi sem eykur jöfnuð og fjármagnar velferð.“ Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnarinnar vegna fjárlagafrumvarpsins sem nú liggur fyrir Alþingi, en þar eru meðal annars áformaðar ýmsar breytingar á tekjuskattskerfinu.

Miðstjórnin segist fagna því að loks liggi fyrir nýjar tillögur að breytingum á tekjuskattskerfinu. „Breytingarnar skila sér hins vegar of seint í vasa launafólks og stjórnvöld bregðast hlutverki sínu við að láta þá sem eru aflögufærir greiða réttlátan hlut til samfélagsins til að tryggja viðunandi fjármögnun velferðar og samfélagsinnviða,“ segir í ályktuninni.

Segir þar að lág- og millitekjufólki hafi á síðustu árum borið sífellt þyngri skattbyrðar og hafi í kjölfar kjarasamninga síðasta vor verið lofað umbótum á skattkerfinu til að auka ráðstöfunartekjur og snúa þessari þróun við. „Að ekki standi til að efna loforðið að fullu fyrr en um mitt samningstímabilið veldur þess vegna verulegum vonbrigðum. Launafólk, öryrkjar og aldraðir sem hafa lágar tekjur hafa ekki tíma til að bíða svo lengi – þau þurfa léttari skattbyrði strax,“ segir í ályktuninni.

Kallar miðstjórnin eftir því að tekinn verði upp hátekjuskattur, hækkun fjármagnstekjuskatts og breytinga á sköttum fyrir auðlindanýtingu.

Segir miðstjórnin að ríkisfjármálastefnan hafi  gengið út á að treysta á auknar tekjur í uppsveiflu og veikja tekjustofna hafi nú raungerst. Til að halda jafnvægi í ríkisfjármálunum uppfylli fjárlögin núna því ekki væntingar félagsmanna sambandsins. „Þetta birtist m.a. í fjárlagafrumvarpinu í ófullnægjandi fjármögnun sjúkrahúsþjónustunnar sem stöðugt glímir við rekstrarvanda og niðurskurðarkröfu sem bitnar á þjónustu við sjúklinga og veldur óhóflegu álagi á starfsfólk ár eftir ár. Lífeyrisþegar og atvinnuleitendur sitja eftir og fá langtum minni kjarabætur en lágtekjufólk á vinnumarkaði. Engum fjármunum er varið í marglofaðar umbætur á greiðslukerfi almannatrygginga og þjónustu við einstaklinga með skerta starfsgetu. Þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi og brýna þörf fyrir stuðning við atvinnuleitendur af erlendum uppruna eru engin áform um auknar vinnumarkaðsaðgerðir og þjónustu við atvinnuleitendur. Framlög til framhaldsfræðslukerfisins sem þjónustar þá hópa á vinnumarkaði sem hafa minnsta menntun lækka umtalsvert á sama tíma og við blasir að umbreytingar sem nú eiga sér stað á vinnumarkaði munu koma verst niður á þessum hópum. Við þetta bætast fréttir af fyrirhuguðum vegtollum vegna samgönguumbóta sem munu leggjast þyngst á tekjulægstu hópanna.“

„Við sættum okkur aldrei við skattkerfisbreytingu sem lág- og millitekjufólk greiðir sjálft með veikara velferðarkerfi, verri innviðum, notendagjöldum og auknum nefsköttum,“ segir að lokum í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert