Séu með kveikt á ökuljósum í rigningunni

„Í svona veðri er auðvitað betra að vera vel sýnilegur …
„Í svona veðri er auðvitað betra að vera vel sýnilegur í umferðinni ólíkt þessum ökutækjum sem við rákumst á í umdæminu.“ Ljósmynd/Lögreglan

Nú er úti veður vont verður allt að klessu,“ skrifar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á Facebook og varar við hressilegri rigningu í dag.

Vonast lögregla til að allir gangandi og hjólandi vegfarendur taki fram regnfatnaðinn. Jafnframt sé þetta vondur dagur fyrir ökumenn að uppgötva að rúðuþurrkur séu í ólagi.

Að síðustu verðum við að minna á mikilvægi ljósanna, en í svona veðri er auðvitað betra að vera vel sýnilegur í umferðinni ólíkt þessum ökutækjum sem við rákumst á í umdæminu. Þessi sjón er því miður alltof algeng og því eru ökumenn beðnir um að hafa kveikt á ökuljósunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert