Staðreynd sem veit á gott

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir er nýr sveitarstjóri Húnaþings vestra
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir er nýr sveitarstjóri Húnaþings vestra mbl.is/Sigurður Bogi

„Íbúum hér á svæðinu fjölgar sem er ánægjulegt. Sem dæmi má nefna að hér er minnst fækkun barna í dreifbýli á landinu og börnum í skólanum fjölgar. Sú staðreynd veit á gott um framtíðina,“ segir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, nýr sveitarstjóri í Húnaþingi vestra.

Hún kom til starfa nyrðra 15. ágúst. Það segir nokkuð um stöðu mála á svæðinu að henni var þá ómögulegt að fá húsnæði á Hvammstanga, þar sem skrifstofur sveitarfélagsins eru.

„Ég er svo sem ekki á flæðiskeri stödd. Bý um þessar mundir í fínni íbúð frammi í Miðfirði, sem er um það bil 15 kílómetra frá Hvammstanga og ek þaðan til vinnu, sem þykir ekki mikið miðað við vegalengdir á höfuðborgarsvæðinu. Svo er ég alin upp í sveit og líkar vel í því umhverfi,“ segir Ragnheiður Jóna í samtali í Morgunblaðinu í dag. Á síðasta ári var hún framkvæmdastjóri hátíðahalda í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands.

Hvammstangi. Íbúum Húnaþings vestra hefur verið að fjölga enda er …
Hvammstangi. Íbúum Húnaþings vestra hefur verið að fjölga enda er góður gangur í atvinnulífi á svæðinu. mbl.is/Sigurður Bogi
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert