Beindi leikfangabyssu út um glugga á bíl

Lögreglan hafði afskipti af tveimur ungum mönnum í gærkvöldi sem …
Lögreglan hafði afskipti af tveimur ungum mönnum í gærkvöldi sem beindu leikfangabyssu út um glugga á bíl. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um mann sem var að beina byssu út um glugga bifreiðar sem hann var farþegi í á Miklubraut. Beindi hann byssunni að umferð sem var samsíða.

Lögreglumaður, sem var þó ekki á vakt, veitti þessu athygli og tilkynnti lögreglu rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. 

Bifreiðinni var ekið í átt að Breiðholti síðan út á Reykjanesbraut aftur þar sem lögregla hafði afskipti af ökumanni og farþega. Þarna voru á ferðinni tveir ungir menn, 17 og 18 ára, sem höfðu verið að leika sér með leikfangabyssu. 

Mennirnir voru færðir á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekin af þeim með aðkomu foreldra og Barnaverndar.  Þá var lagt hald á byssuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert