Aðildarfélög Bandalags háskólamanna (BHM) krefjast þess að viðsemjendur, það er íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg, hefji án tafar raunverulegt samtal við félögin um launalið nýrra kjarasamninga.
Samningar hafa verið lausir í tæpt hálft ár. Ekki hefur dregið til tíðinda eftir að viðræðurnar fóru aftur í gang í haust eftir sumarfrí, segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, og ekki tókst að standa við endurskoðaðar viðræðuáætlanir og ljúka kjarasamningum fyrir 15. september.
„Enn hafa viðsemjendur ekki fengist til að ræða sanngjarnar launakröfur félaganna. Við viljum að háskólamenntun skili einstaklingum ávinningi. Það er miður að viðsemjendur hafa til þessa ekki boðið okkur annað en kjararýrnun í formi krónutöluhækkana og skerðingar þegar áunninna réttinda,“ segir í tilkynningu BHM.
Aðildarfélögin sem skrifa undir yfirlýsinguna er 21 talsins: