126 milljóna afgangur hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Á ársfundinum var m.a. tekin ákvörðunum að tryggja nýtt húsnæði …
Á ársfundinum var m.a. tekin ákvörðunum að tryggja nýtt húsnæði undir heilsugæsluna á Akureyri. Mynd úr safni. mbl.is/​Hari

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) var rekin í fyrra með 126 milljón króna afgangi og er rekstur stofnunarinnar á áætlun að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá stofnuninni.  

Ársfundur HSN var haldinn í Hofi í dag.

Rekstrarafganginn má rekja til sérstakrar aukafjárveitingar sem heilbrigðisstofnanir fengu í fyrra. Rekstur stofnunarinnar á fyrstu 8 mánuðum þessa árs er samkvæmt áætlun, en stefnt er á að stofnunin verði rekin með 30 milljóna halla á árinu 2019.

Stofnunin er þá sögð hafa styrkt þjónustu sína á fjölmörgum sviðum, svo sem í hjúkrunarmóttöku, með uppsetningu lífsstíls- og sykursýkismóttöku, með aukinni mönnun í heimahjúkrun, og í sálfélagslegri þjónustu.

„Það er vissulega ánægjulegt að sjá þennan árangur í rekstrinum, þrátt fyrir miklar áskoranir. Ég vil þakka og hrósa starfsfólki HSN fyrir þeirra framlag sem hefur haft allt að segja,“ var haft eftir Jóni Helga Björnssyni í tilkynningunni. Fjölmörg brýn og fjárfrek verkefni séu fram undan hjá HSN, m.a að  að tryggja nægilega mönnun sem nauðsynleg sé til að veita fullnægjandi þjónustu.

„Þrátt fyrir að stofnunin sé vel mönnuð að flestu leyti hafa verið erfiðleikar við mönnun hjúkrunarfræðinga á einstaka stöðum. Þá vantar víða heimilislækna til starfa, en enginn fastur læknir er á Blönduósi og mönnun heimilislækna á Akureyri hefur verið ófullnægjandi sem valdið hefur of löngum biðtíma eftir lækni. Við höfum brugðist við þessu með því að styrkja hjúkrunarmóttöku hjá okkur, setja upp sérstakt verkjateymi og að ráða sjúkraþjálfara til starfa á stöðinni á Akureyri,” sagði Jón Helgi.

Á ársfundinum var einnig tekin ákvörðun um að byggja nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík. Þá verður unnið að því að tryggja nýtt húsnæði undir heilsugæsluna á Akureyri. Einnig verður boðið upp á heilsueflandi heimsóknir til einstaklinga sem hafa náð 80 ára aldri og loks mun nýtt geðheilsuteymi starfa þvert á umdæmi einstakra heilsugæslustöðva.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert