Garnaveiki staðfest á Tröllaskaga

Kind með lömbum sínum. Mynd úr safni.
Kind með lömbum sínum. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Garnaveiki hefur verið staðfest á sauðfjárbúi á Tröllaskaga. Veikin, sem ekki hafði greinst í hólfinu frá árinu 2008, greindist nú á bænum Brúnastöðum í Fljótum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Matvælastofnun (MAST).

Tilfellið uppgötvaðist við smölun um síðustu helgi og eftir að héraðsdýralæknir hafði skoðað kindina var henni lógað, sýni tekið úr henni og sent til greiningar á Keldum. Sýnið reyndist jákvætt með tilliti til garnaveiki.

Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki.  Á bæjum sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu.

Orsök sjúkdómsins er lífseig baktería af berklaflokki (Mycobacterium paratuberculosis). Helstu einkenni hennar eru hægfara vanþrif með skituköstum.

Í þeim hjörðum sem veikin kemur upp getur einnig verið þó nokkuð um „heilbrigða smitbera“. Meðgöngutími í sauðfé er 1-2 ár eða lengri.

Garnaveikibakterían veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saurnum og geta lifað í 1-1 ½ ár í óhreinindum og pollum umhverfis gripahús, við afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast úti um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni, að því er fram kemur í tilkynningu MAST.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert