Kílómetrastaða verði skráð í miðlæga þjónustubók

Misferli Procar-bílaleigunnar er ástæðan fyrir umræðu um breytingar.
Misferli Procar-bílaleigunnar er ástæðan fyrir umræðu um breytingar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) og Bílgreinasambandið hvetja til þess að tekið verði upp kerfi hér til þess að draga úr hættunni á að svindlað sé á kílómetrastöðu bíla.

Ein hugmyndin er að koma upp miðlægri þjónustubók þar sem kílómetrastaðan verði færð inn við allar heimsóknir til verkstæða og í þjónustuskoðanir, auk hinnar opinberu öryggisskoðunar.

Slík kerfi eru rekin í Hollandi og Belgíu og hafa að sögn reynst svo vel að önnur ríki Evrópu líta þangað við endurskoðun á reglum til að draga úr kílómetrasvindli, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert