Leggja þarf nýjan veg um Vatnsnes

Hamarsrétt. Ferðafólk eykur mjög álagið á Vatnsnesvegi
Hamarsrétt. Ferðafólk eykur mjög álagið á Vatnsnesvegi mbl.is/Árni Sæberg

Áætla má að kostnaður við að leggja nýjan veg með bundnu slitlagi um Vatnsnes kosti um 3,5 milljarða króna. Vegurinn kemst reglulega í fréttir vegna þess hversu illa hann fer í rigningum og veldur heimamönnum og ferðafólki erfiðleikum.

Bundið slitlag liggur frá hringvegi að Hvammstanga og fimm kílómetrum betur. Þá eru eftir 70 kílómetrar fyrir nesið, að hringveginum á austanverðu nesinu. Vegurinn er mjór malarvegur, með útskotum til að bílar geti mæst.

Gunnar H. Guðmundsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Akureyri, segir að tekist hafi á undanförnum árum að hafa gott malarslitlag á veginum. Ekki verði þó við náttúruöflin ráðið. Umferð sé þung og ómögulegt að halda honum við í rigningatíð. Um 400 bílar fara um Vatnsnes á sólarhring á sumrin og er þetta með umferðarþyngstu malarvegum á landinu.

Ekki hægt að takmarka umferð

Vegagerðin telur ekki fært að takmarka umferð um veginn. Þá þyrfti að velja hverjir fengju að aka um hann og hverjum ætti að snúa frá, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert