Frítt í strætó í dag

Frítt verður í strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag í tilefni …
Frítt verður í strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag í tilefni bíllausa dagsins. mbl.is/Valgarður Gíslason

Frítt verður í strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag í tilefni af bíllausa deginum. Dagurinn markar lok evrópsku samgönguvikunnar og í dag munu Samtök um bíllausan lífsstíl efna til bíllausrar göngu klukkan 13, en þetta er í fyrsta sinn sem sérstök dag­skrá er í til­efni dags­ins.

Milli kl. 13:00 og 13:30 verður Miklubraut lokað fyrir umferð einkabíla frá Lönguhlíð og að Njarðargötu. Í staðinn verður gatan opnuð öðrum vistvænum samgöngumátum sem munu aka í skrúðgöngu niður að Lækjargötu þar sem fjölbreytt dagskrá tekur við.

Dagskráin hefur þau áhrif á ferðir strætó að á meðan á göngunni stendur munu leiðir 1, 3 og 6 ekki geta ekið vestur um Miklubraut frá gatnamótum Lönguhlíðar. Leiðirnar aka í staðinn hjáleið um Lönguhlíð í átt að Hlemmi. 

Biðstöðvarnar Háskóli Íslands, BSÍ/Landspítalinn og Klambratún (á leið vestur) verða óvirkar í eina klukkustund. Þá kann smávægileg röskun að myndast á leiðum 5, 11, 12, 13 og 15 milli kl. 12:30 og 13:30 meðan á göngunni stendur. 

Þær breytingar verða einnig að Lækjargata lokar fyrir strætó milli kl. 12:30 og 17:00. Leiðir 1, 3 og 6 aka Snorrabraut í stað Sæbrautar, til og frá Hlemmi. Leiðir 11, 12 og 13 aka um Snorrabraut og gömlu Hringbraut í stað Sæbrautar, til og frá Hlemmi.

Biðstöðvarnar Lækjartorg, Harpa, Sæbraut/Frakkastígur, Sæbraut/Vitastígur, MR, Fríkirkjuvegur og Ráðhúsið eru óvirkar þennan tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert