Hvorki hnífar né barefli fundust

mbl.is/Eggert

Á níunda tímanum í gærkvöld barst tilkynning um átök unglingspilta við Salaskóla í Kópavogi og sagt að einhverjir í hópnum væru með hnífa og barefli. Lögreglan brá skjótt við og hélt þegar á vettvang en átökin voru yfirstaðin þegar þangað var komið.

Frá þessu greinir lögreglan í tilkynningu. Hún segir ennfremur að rætt hafi verið við nokkra sem áttu hlut að máli og þeim síðan ekið til síns heima þar sem rætt var við foreldra þeirra.

„Engir sjáanlegir áverkar voru á neinum piltanna sem komu við sögu og hvorki hnífar né barefli fundust í tengslum við málið. Unglingarnir voru sammála um að til deilna hefði komið en sitt sýndist hverjum um atburðarásina.

Málið er í rannsókn og unnið í samráði við barnaverndaryfirvöld,“ segir lögreglan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert