Lýsa yfir vantrausti á ríkislögreglustjóra

Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna.
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lýst er yfir vantrausti á Harald Johannessen ríkislögreglustjóra í yfirlýsingu frá formannafundi Landssambands lögreglumanna sem fram fór í dag og er skorað á hann að stíga þegar til hliðar.

Fram kemur í yfirlýsingunni að í ljósi þeirrar umræðu sem átt hafi sér stað um störf og framkomu ríkislögreglustjóra sé orðið ljóst að hann njóti ekki trausts lögreglumanna í landinu. Undir yfirlýsinguna ritar Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert