Ríkisstjórn ræðir mál ríkislögreglustjóra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra gengur inn á ríkisstjórnarfund í dag.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra gengur inn á ríkisstjórnarfund í dag. mbl.is/​Hari

Ríkisstjórn Íslands er saman komin í Stjórnarráðinu til reglubundinna fundarhalda. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra staðfesti við fjölmiðla þegar hún gekk inn á fundinn að málefni ríkislögreglustjóra yrðu til umræðu á fundinum.

Að öðru leyti vildi Áslaug Arna ekki tjá sig við fjölmiðla fyrr en að fundinum loknum.

Átta af níu lögreglustjórum landsins hafa lýst vantrausti á Harald Johannessen ríkislögreglustjóra og er því ljóst að alvarleg staða er komin upp innan lögreglunnar í landinu.

Innan við fjórar vikur eru liðnar frá því að Áslaug Arna tók við embætti dómsmálaráðherra og er ljóst að hennar bíður ærið verkefni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert