Hatursfullar athugasemdir um Thunberg óásættanlegar

Thun­berg hef­ur verið nokkuð til umræðu í heimsmiðlunum síðustu daga …
Thun­berg hef­ur verið nokkuð til umræðu í heimsmiðlunum síðustu daga eftir að hún flutti inn­blásna ræðu um lofts­lags­mál á leiðtoga­fundi Sam­einuðu þjóðanna í New York á mánudag. AFP

Unicef á Íslandi segir það ekki ásættanlegt að fullorðið fólk skrifi niðrandi og hatursfullar athugasemdir um Gretu Thunberg, 16 ára loftslagsaðgerðasinna. Samtökin biðja fólk um að hugsa sig tvisvar um áður en það skrifar athugasemdir á samfélagsmiðla. 

„Því miður eru margir fullorðnir að skrifa niðrandi og hatursfullar athugasemdir um Gretu sem manneskju. Það er EKKI ásættanlegt. Sem loftslagsaðgerðarsinni, sem barn og sem manneskja á Greta, ásamt öðrum, rétt á að láta rödd sína heyrast!“ segir meðal annars í facebookfærslu Unicef á Íslandi. 

Thun­berg hef­ur verið nokkuð til umræðu í Banda­ríkj­un­um síðustu daga. Á mánudag flutti hún inn­blásna ræðu um lofts­lags­mál á leiðtoga­fundi Sam­einuðu þjóðanna í New York þar sem hún lýsti með mikl­um tif­inn­inga­hita hvernig leiðtog­ar heims væru að svíkja henn­ar kyn­slóð með því að láta hjá líða að grípa til nægra aðgerða gegn lofts­lags­vánni. 

Don­ald Trump Bandaríkjaforseti hef­ur verið gagn­rýnd­ur fyr­ir að hæðast að Thun­berg í tísti og þá vakti mikla athygli þegar álitsgjafi í þættinum The Story with Martha MacCall­um sagði Thun­berg „and­lega veikt sænskt barn“ sem væri verið að mis­nota í póli­tísk­um til­gangi.

Fox News brást við skömmu eft­ir að þátt­ur­inn fór í loftið með því að segja um­mæl­in al­gjör­lega óá­sætt­an­leg. „Við biðjum Gretu Thun­berg og áhorf­end­ur okk­ar af­sök­un­ar,“ sagði í yf­ir­lýs­ingu frá stöðinni.

Unicef vekur athygli á því í kjölfar þessarar miklu fjölmiðlaumræðu um Thunberg að hún eigi að njóta réttar síns sem barn og sem manneskja til að láta rödd sína heyrast í loftslagsumræðunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert