Kjaradeilu BSRB við ríkið vísað til ríkissáttasemjara

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Ljósmynd/BSRB

„Það var mikil samstaða og við vorum sammála um að næsta skref væri að vísa deilunni gagnvart ríkinu til ríkissáttasemjara,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í samtali við mbl.is.

Samningseiningar BSRB funduðu í dag í kjölfar þess að það slitnaði upp úr kjaraviðræðum við ríkið í gær og voru fulltrúar aðildarfélaga bandalagsins einhuga um að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.

„Ekki neinn að fara ganga að þessu tilboði“

Í tilkynningu á vefsíðu BSRB segir að fundurinn í dag hafi verið mjög gagnlegur og mikil samstaða ríkt þar.

„Viðræðurnar við ríkið hafa ekkert þokast undanfarið og því lítið eftir að gera en að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Á fundinum kom skýrt fram að fyrirliggjandi tilboð ríkisins er með öllu óásættanlegt. Það er ekki neinn að fara ganga að þessu tilboði,“ er haft eftir Sonju Ýri.

Taki meira af réttindum félagsmanna en þeir fái í staðinn

Helst er deilt um kröfu BSRB um styttingu vinnuvikunnar í 35 klukkustundir án kjaraskerðingar, með meiri styttingu fyrir vaktavinnufólk. Í tilboði sem fulltrúar ríkisins lögðu fram í gær var áfram miðað við 40 klukkustunda vinnuviku en opnað á möguleikann á því að samið yrði um styttingu vinnuvikunnar á einstökum vinnustöðum með því að sleppa kaffitímum og gefa eftir fleiri samningsbundin réttindi.

„Tilboð ríkisins felur í raun í sér að opinberir starfsmenn eiga að borga fyrir styttingu og gott betur. Ætlunin er að taka meira af kjarasamningsbundnum réttindum en okkar félagsmenn myndu fá í staðinn og það sjá allir að það gengur einfaldlega ekki upp,“ er einnig haft eftir formanninum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert