Tíu sækja um stöðu framkvæmdastjóra nýrra sviða

Tíu umsækjendur eru um þrjár stöður framkvæmdastjóra nýrra sviða á …
Tíu umsækjendur eru um þrjár stöður framkvæmdastjóra nýrra sviða á Landspítalanum. mbl.is/Árni Sæberg

Tíu hafa sótt um stöðu þriggja framkvæmdastjóra nýrra sviða á Landspítalanum í samræmi við nýtt skipurit Landspítalans sem tekur gildi á næstunni. 

Breytingarnar, sem gerðar eru í skugga rekstrarhalla spítalans, snúa meðal annars að um­tals­verðum breyt­ing­um á fram­kvæmda­stjórn spít­al­ans þar sem fram­kvæmda­stjór­um verður fækkað um tæp­an helm­ing. 

Störfin voru auglýst 1. september. Tólf sóttu um í upphafi en tveir drógu umsókn sína til baka, að því er fram kemur í frétt á vef spítalans

Umsækjendur um störfin eru:

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
Hlíf Steingrímsdóttir
Ingi Jarl Sigurvaldason
Ingólfur Þórisson
Jóhann Jónsson 
Jóhann Kristjánsson
Jón Hilmar Friðriksson
Lilja Stefánsdóttir
Ravi Jani
Vigdís Hallgrímsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert