Eydís og Hreinn aðstoða Áslaugu

Eydís Arna Líndal og Hreinn Loftsson, aðstoðarmenn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur …
Eydís Arna Líndal og Hreinn Loftsson, aðstoðarmenn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Eydís Arna Líndal og Hreinn Loftsson hafa verið ráðin aðstoðarmenn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra.

Greint er frá ráðningunni á vef ráðuneytisins.

Eydís Arna lauk MA-próf í lögfræði frá Háskóla Íslands 2016 en starfaði á lögmannsstofunni Lagaþingi frá árinu 2011, fyrst í hlutastarfi með námi, en síðar sem lögfræðingur. Hún hefur að undanförnu verið starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Hreinn Loftsson lauk laganámi við Háskóla Íslands árið 1983 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 1993. Hann á að baki fjölbreyttan feril í lögmennsku, atvinnulífi, stjórnsýslu og sem aðstoðarmaður ráðherra í nokkrum ráðuneytum frá árinu 1985 til 1992. Hann starfaði sem lögmaður fyrst á eigin stofu og síðan sem meðeigandi lögmannsstofunnar á Höfðabakka. Frá 2014 hefur hann starfað sjálfstætt. Hreinn hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja, nefnda og félaga, auk starfs á vettvangi stjórnmála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert