Óku rafmagnshlaupahjóli á gangandi konu

Stjórnandi rafmagnshlaupahjólsins er grunað um ölvun við stjórn hjólsins.
Stjórnandi rafmagnshlaupahjólsins er grunað um ölvun við stjórn hjólsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilkynnt var slys við Klambratún um kvöldmatarleytið í gær en þar höfðu tveir menn á rafmagnshlaupahjóli ekið á gangandi konu.

Konan féll og meiddist og var sjúkrabíll kallaður til. Ekki er vitað um meiðsl konunnar, samkvæmt dagbók lögreglunnar.

Stjórnandi rafmagnshlaupahjólsins er grunaður um ölvun við stjórn hjólsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert