Rætt um 700–800 milljónir í bætur

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til laga um heimild til að greiða bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefur verið dreift á Alþingi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Í greinargerð með frumvarpinu segir að í þeim viðræðum sem settur ríkislögmaður hafi átt við aðila málsins hafi 700–800 milljóna króna heildarfjárhæð verið rædd. Sú fjárhæð kunni þó að taka einhverjum breytingum eftir framgangi samningaviðræðna. 

„Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra verði veitt heimild til að greiða þeim bætur sem sýknaðir voru með dóminum og eftirlifandi mökum og börnum þeirra sýknuðu sem látnir eru. Í frumvarpinu kemur fram að enda þótt fjármunir geti aldrei bætt það tjón sem hinn rangláti dómur hefur valdið hinum sýknuðu og fjölskyldum þeirra sé eigi að síður nauðsynlegt að ríkisvaldið greiði bætur sem hluta af uppgjöri og viðurkenningu á rangindum,“ segir enn fremur í tilkynningu ráðuneytisins vegna málsins.

Frumvarpið tryggi að sérstök lagaheimild standi að baki greiðslu bóta með sanngirni og jafnræði gagnvart hinum sýknuðu og aðstandendum þeirra að leiðarljósi. Aukinheldur sé gert ráð fyrir skattfrelsi bótanna. „Fram kemur í frumvarpinu að réttur aðila til að láta reyna á lögvarinn rétt sinn að öðru leyti fyrir dómi standi óhaggaður og þá komi bætur sem greiddar kunna að hafa verið samkvæmt lögunum til frádráttar.“

Þá er gengið út frá því að samhliða framlagningu frumvarpsins og meðferð þess á Alþingi „haldi viðræður við aðila máls áfram með það að markmiði að leita samkomulags um fjárhæð bóta og önnur atriði sem lúta að samfélagslegu uppgjöri málsins.“

Frumvarpið í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert