Þolendum beri engin skylda til að stíga fram

„Brotaþolum ber engin skylda til að fara fyrir fjölmiðla eða …
„Brotaþolum ber engin skylda til að fara fyrir fjölmiðla eða dómstóla, kjósi þeir fremur að leita einslega til trúnaðarmanns eða yfirmanns, séu þær áreittar af samstarfsmanni,“ segir í yfirlýsingu kvennanna, sem sögð er send út af gefnu tilefni. mbl.is

Hópur kvenna, sem kalla sig #metoo-konur, hefur sent frá sér yfirlýsingu til þess að minna á hver tilgangur #metoo-byltingarinnar er. Þar segir meðal annars að með þátttöku sinni í #metoo hafi þolendur ekki gengist í ábyrgð fyrir mannorð gerenda sinna, né beri þær ábyrgð á ákvörðunum þeirra sem kusu að áreita þær eða beita þær ofbeldi, né tilfinningum þeirra eða starfsframa.

„Brotaþolum ber engin skylda til að fara fyrir fjölmiðla eða dómstóla, kjósi þeir fremur að leita einslega til trúnaðarmanns eða yfirmanns, séu þær áreittar af samstarfsmanni. Þær eiga rétt á öruggu starfsumhverfi, þar sem mannréttindi þeirra eru virt og þær metnar að verðleikum. Að sama skapi þurfa atvinnurekendur að hafa svigrúm til að bregðast við ásökunum um ofbeldi eða áreitni án þess að fyrir liggi dómur. Fátt myndi ávinnast ef sakfellingardómur væri eina forsenda þess að segja upp starfsmanni sem brýtur gegn samstarfsfólki sínu, enda er réttarkerfið önnur brotalöm þegar ofbeldi gegn konum er annars vegar,“ segir í yfirlýsingunni, sem sögð er send út að gefnu tilefni.

Má geta sér til um það að tilefni þessarar yfirlýsingar sé umræða í samfélaginu um aðalmeðferðina í máli Atla Rafns Sigurðarsonar leikara gegn Borgarleikhúsinu og Kristínu Eysteinsdóttur leikhússtjóra, sem fram fór í lok síðustu viku.

Í því máli sagðist Atli Rafn aldrei hafa fengið að heyra hvaðan tilkynningarnar um kynferðislega áreitni af hans hálfu væru komnar, en við aðalmeðferð málsins kom fram í máli Kristínar að sjö tilkynningar hefðu borist um sex tilvik kynferðislegrar áreitni Atla Rafns.

Konurnar í hópnum sem alls eru 29 talsins, skora einnig á fjölmiðlafólk að „vanda umfjöllun um þessi mál og birta ekki fréttir sem gera aðför að einstökum þolendum, þar sem þeir eru vændir um lygar“ en í framhaldi af aðalmeðferð í máli Atla Rafns gegn Borgarleikhúsinu hefur Ari Alexander Ergis Magnússon leikstjóri komið fram í fjölmiðlum og varið Atla Rafn vegna einnar #metoo-sögu um hann.

Atli Rafn kallaði söguna „lygasögu“ fyrir héraðsdómi og það gerir leikstjórinn einnig og hefur sagt í samtali við fjölmiðla að hann ætli sér að fara í meiðyrðamál við konuna.

„Fjölmiðlar eiga ekki að vera gjallarhorn fyrir þá sem hafa beina hagsmuni af því að rýra trúverðugleika þolenda. Við lýsum yfir stuðningi við þá hugrökku brotaþola sem rofið hafa þögnina og þá atvinnurekendur sem standa við bakið á þeim,“ segja konurnar í yfirlýsingu sinni.

Yfirlýsingu kvennanna má lesa hér að neðan:

„Að gefnu tilefni viljum við minna á hver tilgangur #metoo-byltingarinnar er. Tilgangurinn er að konur finni kraftinn í fjöldanum og geti sameinast um að afhjúpa aldagamalt misrétti sem blasir alltof víða við, misrétti sem er viðhaldið með úreltum viðhorfum, meðvirkni með þeim sem misnota vald sitt, þolendasmánun og þöggun. Öldum saman hafa konur þurft að bera harm sinn í hljóði ef þeim er mismunað, þær beittar ofbeldi eða áreittar á vinnustað, almannafæri eða jafnvel á heimili sínu. Þær hafa verið látnar axla ábyrgðina og bera skömmina, með þeim skilaboðum að hefðu þær nú bara hegðað sér öðruvísi/klætt sig á annan hátt/dregið skýrari mörk/gætt sín betur, þá hefðu þær afstýrt gjörðum gerandans. Þessi hugsunarháttur leysir gerendur undan ábyrgð og þaggar niður í þolendum, en hvort tveggja auðveldar ofbeldismönnum að komast óáreittir upp með iðju sína.

Þeir brotaþolar sem stigið hafa fram og sagt frá hafa í mörgum tilvikum þurft að gjalda fyrir það dýru verði, með atvinnumissi, ærumissi og hafa jafnvel hrakist úr heimabyggð sinni. Með tilkomu #metoo-byltingarinnar gátu konur myndað breiðfylkingu og vakið athygli á þessu óásættanlega ástandi í krafti fjöldans. Þær þurftu ekki lengur að standa einar og berskjaldaðar með frásagnir sínar og mæta fordæmingu og skömm, heldur gátu þær valið um að segja frá reynslu sinni nafnlaust eða láta nægja að nota fimm stafa myllumerki, sem sagði allt sem segja þurfti.

Með þátttöku sinni í #metoo gengust þolendur ekki í ábyrgð fyrir mannorð gerenda sinna. Þær bera ekki ábyrgð á ákvörðunum þeirra sem kusu að áreita þær eða beita þær ofbeldi, né tilfinningum þeirra eða starfsframa. Brotaþolum ber engin skylda til að fara fyrir fjölmiðla eða dómstóla, kjósi þeir fremur að leita einslega til trúnaðarmanns eða yfirmanns, séu þær áreittar af samstarfsmanni. Þær eiga rétt á öruggu starfsumhverfi, þar sem mannréttindi þeirra eru virt og þær metnar að verðleikum. Að sama skapi þurfa atvinnurekendur að hafa svigrúm til að bregðast við ásökunum um ofbeldi eða áreitni án þess að fyrir liggi dómur. Fátt myndi ávinnast ef sakfellingardómur væri eina forsenda þess að segja upp starfsmanni sem brýtur gegn samstarfsfólki sínu, enda er réttarkerfið önnur brotalöm þegar ofbeldi gegn konum er annars vegar. Auk þess gefur auga leið að sakfelling getur einungis átt sér stað í kjölfar brots og gagnast því ekkert við að fyrirbyggja ofbeldi.

Þá skorum við á fjölmiðlafólk að vanda umfjöllun um þessi mál og birta ekki fréttir sem gera aðför að einstökum þolendum, þar sem þeir eru vændir um lygar. Fjölmiðlar eiga ekki að vera gjallarhorn fyrir þá sem hafa beina hagsmuni af því að rýra trúverðugleika þolenda. Við lýsum yfir stuðningi við þá hugrökku brotaþola sem rofið hafa þögnina og þá atvinnurekendur sem standa við bakið á þeim. Líf, geðheilsa og starfsframi kvenna er ekki lengur ásættanlegur fórnarkostnaður á atvinnumarkaði sem hefur hylmt yfir með gerendum frá örófi alda. Þeirri skömm var skilað í #metoo byltingunni.

Virðingarfyllst,

Anna Lind Vignisdóttir
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir
Drífa Snædal
Edda Ýr Garðarsdóttir
Elísabet Ýr Atladóttir
Elva Hrönn Hjartardóttir
Erla Hlynsdóttir
Fríða Rós Valdimarsdóttir
Guðrún Helga Sigurðardóttir
Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir
Halldóra Jónasdóttir
Halla B. Þorkelsson
Heiða Björg Hilmisdóttir
Hlíf Steinsdóttir
Kolbrún Dögg Arnardóttir
Kolbrún Garðarsdóttir
Kristín I. Pálsdóttir
Marta Jónsdóttir
Myrra Leifsdóttir
Nichole Leigh Mosty
Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir
Ósk Gunnlaugsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Silja Bára Ómarsdóttir
Stefanía Svavarsdóttir
Steinunn Ýr Einarsdóttir
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Þórlaug Ágústsdóttir“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert