Hlaupið í Múlakvísl ekki náð hámarki og gæti vaxið

Mikil gasmengun fylgir hlaupinu í Múlakvísl.
Mikil gasmengun fylgir hlaupinu í Múlakvísl. mbl.is/Jónas Erlendsson

Lítið hlaup er í gangi í Múlakvísl. Mikil gasmengun fylgir hlaupinu en það hefur ekki náð hámarki og gæti vaxið. Rafleiðni hefur hækkað jafnt og þétt síðustu tvo daga í Múlakvísl og er nú um 260 míkróS/cm. Þetta kemur fram í athugasemdum sérfræðings Veðurstofu Íslands

Mikið vatn er í ánni miðað við árstíma en þó minna en hámarks sumarrennsli. Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. Mikil gasmengun fylgir hinsvegar hlaupinu og því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax

Miðað við fyrri hlaup í Múlakvísl og þau gögn sem liggja fyrir er líklegt að hlaupið standi yfir í einhverja daga til viðbótar. Veðurstofan, Almannavarnir og viðbragðsaðilar á svæðinu munu fylgjast náið með framvindu mála næstu sólarhringa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert