Varhugavert að staldra við nálægt Múlakvísl

Miðað við fyrri hlaup í Múlakvísl og þau gögn sem …
Miðað við fyrri hlaup í Múlakvísl og þau gögn sem liggja fyrir er líklegt að hlaupið standi yfir í einhverja daga til viðbótar. mbl.is/Jónas Erlendsson

Rafleiðni í Múlakvísl heldur áfram að hækka jafnt og þétt og er nú um 270 míkróS/cm, að því er kemur fram í athugasemd sérfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Mikil gasmengun fylgir hlaupinu og í gær mældist mengunin yfir heilsuverndarmörkum. Veðurstofan er með gasmæli við Láguhvola sem er um 2 km frá jökuljaðri Kötlujökuls og fylgist áfram með gangi mála. 

Veðurstofan segir varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax.

Sólarupprás við Múlakvísl í morgun. Veðurstofan segir varhugavert að staldra …
Sólarupprás við Múlakvísl í morgun. Veðurstofan segir varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar sökum gasmengunar. mbl.is/Jónas Erlendsson

Hlaupið hefur ekki náð hámarki og gæti vaxið. Mikið vatn er í ánni miðað við árstíma en þó minna en hámarkssumarrennsli. Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. 

Miðað við fyrri hlaup í Múlakvísl og þau gögn sem liggja fyrir er líklegt að hlaupið standi yfir í einhverja daga til viðbótar. Veðurstofan, almannavarnir og viðbragðsaðilar á svæðinu munu fylgjast náið með framvindu mála næstu sólarhringa.

Svona var umhorfs við Múlakvísl í morgun. Gasmengun mældist yfir …
Svona var umhorfs við Múlakvísl í morgun. Gasmengun mældist yfir heilsuverndarmörkum í gær og rafleiðni í ánni heldur áfram að hækka. Búist er við að hlaupið standi yfir næstu daga. mbl.is/Jónas Erlendsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert