„Ekki stoppa ævintýrin okkar“

Mótmælin við Stýrimannaskólann
Mótmælin við Stýrimannaskólann mbl.is/Árni Sæberg

Lóa Margrét Hauksdóttir og Snæfríður Edda Ragnarsdóttir, 11 ára, stóðu í gær fyrir mótmælum gegn áformum borgarinnar um að byggja hús á Vatnshólnum við Háteigsveg sem þær segja að sé vinsælt leiksvæði barna.

Þær marseruðu um svæðið ásamt fleiri börnum í um klukkutíma og hengdu m.a. upp ámálaðan borða með slagorðinu: Ekki stoppa ævintýrin okkar! Hvasst og blautt veður var og því stóðu mótmælin yfir í styttri tíma en áætlað var.

Hafa stúlkurnar þegar safnað 100 undirskrifum og stefna á fund með borgarstjóra um málefnið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert