Starfsmaður embættis forseta Íslands gerðist sekur um kynferðislega áreitni

Í yfirlýsingu forsetans segir að starfsmanninum hafi nú verið heimilað …
Í yfirlýsingu forsetans segir að starfsmanninum hafi nú verið heimilað að snúa aftur til starfa, með samþykki samstarfsmanna sinna, eftir að hafa beðið hlutaðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræðiaðstoðar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Starfsmaður embættis forseta Íslands gerðist sekur um „óþolandi athæfi“, meðal annars kynferðislega áreitni og annað óafsakanlegt háttalag gagnvart tveimur samstarfsmönnum sínum í vinnu- og námsferð starfsmanna embættisins til Parísar 13.-16. september síðastliðinn. Hann fór í leyfi og forsetaritari veitti honum skriflega áminningu, en starfsmanninum hefur nú verið heimilað að snúa aftur til starfa.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, vegna fréttar Fréttablaðsins í dag, þar sem sagði að tvær kvartanir hefðu borist til forseta vegna kynferðislegar áreitni af hálfu starfsmanns í garð samstarfskvenna.

Í yfirlýsingu forsetans segir að starfsmanninum hafi nú verið heimilað að snúa aftur til starfa, með samþykki samstarfsmanna sinna og að uppfylltum tilteknum skilyrðum, eftir að hafa beðið hlutaðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræðiaðstoðar. Einnig kemur fram að forsetinn hafi persónulega tekið viðtöl við alla sem málið varðaði.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tók persónulega viðtöl við alla …
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tók persónulega viðtöl við alla hlutaðeigandi. mbl.is/Eggert

„Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt samstarfsfólk mitt ‒ hafa í öllu ferlinu verið upplýstir um stöðu og þróun mála og hafa fallist á þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, án þess auðvitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli málsins er þannig lokið með samþykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfsmanni var heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum,“ segir í yfirlýsingu forsetans, sem lesa má í heild sinni hér að neðan.

Samkvæmt upplýsingum á vef embættis forseta Íslands eru starfsmenn embættisins níu talsins, fimm karlar og fjórar konur. Á skrifstofu embættisins á Sóleyjargötu 1 í Reykjavík starfa að jafnaði fimm starfsmenn.

Yfirlýsing forseta Íslands

Vegna fréttar á vef Fréttablaðsins í dag um vinnu- og námsferð starfsmanna embættis forseta Íslands til Parísar 13.-16. september síðastliðinn skal þetta tekið fram:

Í ferðinni varð einn starfsmaður embættisins sekur um óþolandi athæfi gagnvart tveimur í ferðahópnum, kynferðislega áreitni í opnu rými og annað háttalag sem aldrei verður fallist á að afsaka megi á nokkurn hátt.

Eftir heimkomu greip embættið til viðeigandi aðgerða, meðal annars með hliðsjón af stefnu og áætlun Stjórnarráðsins gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi.

Um leið og ég varð áskynja um það ólíðandi athæfi sem viðhaft var aflaði ég mér allra mögulegra upplýsinga, meðal annars með viðtölum við alla þá sem málið varðaði. Starfsmaðurinn fór í leyfi og forsetaritari veitti honum skriflega áminningu. Auk þess var starfsmanninum gert ljóst að ekki yrði látið þar við sitja. Í framhaldinu hefur viðkomandi starfsmaður beðið hlutaðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræðiaðstoðar.

Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt samstarfsfólk mitt ‒ hafa í öllu ferlinu verið upplýstir um stöðu og þróun mála og hafa fallist á þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, án þess auðvitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli málsins er þannig lokið með samþykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfsmanni var heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert