Skattsvikamáli Sigur Rósar vísað frá dómi

Georg Holm og Orri Páll Dýra­son, fyrr­ver­andi trommu­leik­ari Sig­ur Rós­ar.
Georg Holm og Orri Páll Dýra­son, fyrr­ver­andi trommu­leik­ari Sig­ur Rós­ar. mbl.is/Eggert

„Þetta er í takt við væntingar,“ segir Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður fjögurra liðsmanna hljómsveitarinnar Sigur Rósar. Máli héraðssaksónara á hendur þeim var vísað frá dómi í morgun en þeir voru sakaðir um stórfelld skattsvik.

Fyrst var greint frá málinu á vef Fréttablaðsins.

Tónlistarmennirnir Jón Þór Birgisson, Kjartan Sveinsson, Georg Hólm og Orri Páll Dýrason voru grunaðir um að hafa komist hjá því að greiða ríflega 150 milljónir króna í skatt. Auk þeirra var endurskoðandi hljómsveitarinnar ákærður.

Héraðssaksóknari hefur kært niðurstöðuna til Landsréttar.

Bjarnfreður segir að dómurinn taki undir með málflutningi hans frá því í héraðsdómi um miðjan september. Þá sagði lögmaðurinn að um væri að ræða tvöfalda refsingu og þrefalda málsmeðferð. 

Bjarnfreður sagði meðal annars fyrir héraði að ís­lenska ríkið hefði á und­an­förn­um árum hlotið áfell­is­dóma hjá MDE fyr­ir slík mál og nefndi í því sam­hengi mál Jóns Ásgeirs Jó­hann­es­son­ar og Tryggva Jóns­son­ar gegn rík­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert