Andlát: Halldór I. Elíasson, prófessor emeritus

Dr. Halldór I. Elíasson.
Dr. Halldór I. Elíasson.

Dr. Halldór Ingimar Elíasson, stærðfræðingur og prófessor emeritus við Háskóla Íslands (HÍ), lést á Landspítalanum 1. október, 80 ára gamall.

Halldór fæddist 16. júlí 1939 á Ísafirði og ólst upp í Hnífsdal, á Skagaströnd og Akureyri. Foreldrar hans voru hjónin Guðný Rósa Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur og húsfreyja og Elías Ingimarsson bóndi, útgerðarmaður, kaupfélagsstjóri og frystihússtjóri. Systkini hans eru Jónas prófessor emeritus (f. 1938), Þorvarður fyrrverandi skólastjóri (f. 1940), Elías Bjarni fyrrverandi yfirverkfræðingur (f. 1942) og Margrét listmálari í Svíþjóð (f. 1946).

Halldór lauk stúdentsprófi frá MA árið 1959 og hóf um haustið nám í eðlisfræði og stærðfræði við háskólann í Göttingen í Þýskalandi. Hann lauk þaðan diplomprófi í stærðfræði árið 1963. Doktorspróf í stærðfræði tók Halldór við háskólann í Mainz í Þýskalandi árið 1964.

Að loknu námi kenndi Halldór við MR veturinn 1964-1965. Hann vann að stærðfræðilegum rannsóknum við Institute of Advanced Studies í Princeton í Bandaríkjunum 1965-1966 og var aðstoðarprófessor við Brown-háskóla á Rhode Island í Bandaríkjunum 1966-67.

Halldór var sérfræðingur við Raunvísindastofnun HÍ 1967-1970 og gestaprófessor við háskólann í Bonn í Þýskalandi 1970-1971 og við Warwick-háskóla í Englandi 1971-1972. Hann varð dósent í stærðfræði við verkfræði- og raunvísindadeild HÍ 1972-1973 og prófessor frá 1973.

Halldór birti margar greinar um stærðfræði í viðurkenndum erlendum stærðfræðitímaritum. Hann var ritstjóri Mathematica Scandinavica fyrir hönd Íslands 1973-1997.

Eftirlifandi eiginkona Halldórs er Björg Cortes Stefánsdóttir, BA, kennari og læknaritari (f. 1947). Þau gengu í hjónaband 1970. Börn þeirra eru Stefán Valdimar (f. 1968), Anna Margrét (f. 1973) og Steinar Ingimar (f. 1975). Barnabörn Halldórs og Bjargar eru fimm talsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert