Eignaspjöll á níu bifreiðum

mbl.is/Eggert

Tilkynnt hefur verið um eignaspjöll á níu bifreiðum í Fossvogshverfinu í Reykjavík í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað nákvæmlega hverjar skemmdirnar eru.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem helstu verkefni lögreglu í morgun eru rakin.

Líkt og greint var frá í morgun var óskað eftir aðstoð lögreglu á áttunda tímanum í morgun á Höfðabakkabrú vegna áreksturs.

Ökumenn bifreiðanna voru fluttir til skoðunar á slysadeild en meiðslin eru talin minniháttar. Báðar bifreiðarnar voru fluttar af vettvangi með dráttarbifreið en talið er að annar ökumannanna hafi ekið gegn rauðu ljósi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert