Styttist í að kveikt verði á Friðarsúlunni

Friðarsúlan í Viðey fær að ljóma í 13. sinn á …
Friðarsúlan í Viðey fær að ljóma í 13. sinn á miðvikudaginn. mbl.is/Styrmir Kári

Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í 13. sinn á miðvikudag, 9. október kl. 20 við friðsæla athöfn. 9. október er fæðingardagur Johns Lennon og mun Friðarsúlan varpa ljósi upp í himininn til 8. desember sem er dánardægur hans.

Boðið er upp á fríar ferjusiglingar og strætóferðir fyrir og eftir athöfn. Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og fleiri halda úti dagskrá í Viðey sem hefst kl. 17.45 og stendur til 21.30, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Salóme Katrín flytur tónlist í Viðeyjarnausti og Hamrahlíðarkórinn mun syngja við Friðarsúluna auk þess sem formaður borgarráðs, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir flytur ávarp. Það er venja að um leið og kveikt er á súlunni er lagið Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono spilað undir og fólki gefst tækifæri til að taka myndir og deila viðburðinum í máli og myndum á samfélagsmiðla. Að lokum leikur Teitur Magnússon fyrir gesti í Viðeyjarnaustinu.

Siglingar og Strætó

Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Siglt verður frá Skarfabakka frá kl. 17.30 til 19.30. Fríar strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka. Fyrsti vagn fer frá Hlemmi kl.17.15 og ekið verður til kl. 19.00. Fyrsta ferja eftir tendrun Friðarsúlunnar siglir frá Viðey kl. 20.30. Hægt verður að taka strætó frá Skarfabakka að Hlemmi frá kl. 20.40 og þar til lokið verður að flytja gesti úr Viðey.

Dagskráin hefst kl. 17.45 með leiðsögn um verk Richards Serra í Viðey á vegum Listasafns Reykjavíkur. Klukkan 18.00 hefst söguganga um byggð og sögu í eyjunni á vegum Borgarsögusafnsins. Leiðsögnin er endurtekin kl. 18:45 og 19:00. Beint streymi verður svo frá athöfninni klukkan 20.00. Leiðsögn hefst við Viðeyjarstofu. 

Friðarsúlan „Imagine Peace Tower“ er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007 til að heiðra minningu Johns Lennons. Friðarsúlan er tendruð árlega á fæðingardegi Lennons þann 9. október og lýsir til 8. desember sem er dánardagur hans. Listaverkið er tákn fyrir baráttu Ono og Lennons fyrir heimsfriði. Friðarsúlan, er í  formi óskabrunns en á hana eru grafin orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungumálum en enska heitið er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon. 

Sjá nánar á videy.com

Fjölmargir leggja leið sína út í Viðey að fylgjast með …
Fjölmargir leggja leið sína út í Viðey að fylgjast með því þegar súlan verður tendruð. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert