Í beinni: Umhverfisdagur atvinnulífsins

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2019 verður haldinn í Hörpu í dag.
Umhverfisdagur atvinnulífsins 2019 verður haldinn í Hörpu í dag. Ljósmynd/Aðsend

Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir, auðlindanýting á norðurslóðum og orkuskipti í flutninga- og hópferðabílum eru meðal þess sem fjallað verður um á Umhverfisdegi atvinnulífsins 2019 sem haldinn er í Hörpu í dag. 

Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Dagskrá samtakanna hefst kl. 8.30 og fylgjast má með deginum í beinu streymi hér að neðan. 

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir m.a. Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku. 

Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, er fundarstjóri á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem …
Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, er fundarstjóri á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fram fer í Hörpu í dag. Ljósmynd/Aðsend

Hér að neðan má sjá dagskrána í heild sinni: 

Setning
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir
Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður samstarfsvettvangsins

Umhverfismál og auðlindanýting á norðurslóðum
Heiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs norðurskautsins

Loftslagsbreytingar, lífríki hafsins og auðlindir
Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

Tækifæri og áskoranir vegna loftslagsbreytinga
Brynjólfur Stefánsson, sjóðstjóri hjá Íslandssjóðum

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin

Kaffihlé kl. 10-10.30

Jákvæðar fyrirmyndir
Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar
Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar
Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Farfugla

Úrgangsmál, samkeppni og hringrásarhagkerfið
Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur hjá VSÓ

Orkuskipti í flutninga- og hópferðabílum
Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar nýorku

Aðlögun að loftslagsbreytingum 
Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna ohf.

12.00 Súpa, spjall og netagerð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert