Leit að De­becker endanlega hætt

Frá leit við Þingvallavatn.
Frá leit við Þingvallavatn.

Leit að Björn De­becker, belgíska ferðamanninum, sem talinn er hafa fallið í Þingvallavatn laugardaginn 10. ágúst, hefur nú verið með öllu hætt. Áfram verður þó svipast um, þegar færi gefst. 

Þetta segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi. Debeckers var síðast leitað um mánaðamótin síðustu og við þá leit kom ekkert fram sem tengdist hvarfi hans. Hlé hafði verið gert á formlegri leit að honum í lok ágúst.

Að sögn Odds munu björgunarsveitir sem reglulega eru við æfingar á vatninu svipast um eftir De­becker. Fundað verður um rannsókn málsins fljótlega og áfram verður gengið um bakka vatnsins.

De­becker var verkfræðingur og tveggja barna faðir og var mikill heimshornaflakkari. Mannlaus kajak hans og bakpoki fundust við Villingavatn laugardaginn 10. ágúst. 

mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert