Mjög alvarlegt vinnuslys

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild um áttaleytið í morgun eftir mjög alvarlegt vinnuslys á athafnasvæði Furu við Hringhellu í Hafnarfirði.

Lögreglan og Vinnueftirlitið rannsaka tildrög slyssins, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert