Hafist verður handa við að sameina lagnaleiðir veitulagna í Elliðaárdal á næstu dögum. Kynningarfundur um framkvæmdirnar verður í kvöld klukkan hálf átta í Rafveituheimilinu í Elliðaárdal.
Sem stendur liggja lagnir af ýmsu tagi víða um dalinn en með framkvæmdunum munu stofnæðar vatnsveitu og hitaveitu auk rafmagns- og fjarskiptastrengja liggja samhliða undir Elliðaárnar í grennd við núverandi hitastokk.
Eftir því sem fram kemur í tilkynningu eru framkvæmdirnar hluti af endurnýjun stofnlagna um svæðið sem staðið hefur síðustu misseri.
„Margar lagnanna eru komnar til ára sinna og mikilvægt að endurnýja þær áður en þær fara að bila, ef til vill á óheppilegum tíma ársins með tilliti til áhrifa á umhverfið. Til að tengja lagnir við Reykjanesbraut við stofnæðar frá Ártúnsbrekku þarf að þvera báðar kvíslar Elliðaánna. Það verður gert við hliðina á núverandi lagnastokki hitaveitunnar, sem jafnframt er göngubrú. Meðan á framkvæmdunum stendur verða árnar færðar um hríð úr farvegi sínum og veitt í framhjáhlaup á um 100 metra kafla,“ segir í tilkynningu Veita.
Tímasetning framkvæmdanna er samkvæmt tilmælum frá Hafrannsóknarstofnun, en þær þurfa að fara fram utan helsta göngutíma fiska, það er frá miðjum október fram til lok mars.
Utan farvegs Elliðaánna er lagnaleiðin að mestu leyti gróin. Áhersla verður lögð á að frágangur verði til fyrirmyndar, en mikil reynsla er hjá Veitum við frágang og uppgræðslu á röskuðum svæðum.
Dregið er úr áhrifum framkvæmdanna á útivist með því að útbúa hjáleiðir með nauðsynlegum merkingum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.