Sjö þegar greinst með flensu

Bólusetning vegna flensu.
Bólusetning vegna flensu. mbl.is/Hari

Alls hafa sjö einstaklingar greinst með inflúensu A á síðustu dögum. Þar af eru sex inniliggjandi á Landspítala en einn leitaði þangað á bráðamóttökuna. Þrír af þeim voru með inflúensu A(H3) en undirgreiningu hjá fjórum er ekki lokið.

Sóttvarnalæknir telur að þrátt fyrir þessi tilfelli fari flensan ekki á flug fyrr en um áramótin, eins og venjulega.

Gripið hefur verið til aðgerða til að draga úr útbreiðslu veirunnar á Landspítalanum með eflingu sýkingavarna og einangrun þeirra sem eru með staðfesta inflúensu eða klínísk einkenni hennar. Einnig er bólusetning hafin á þeim deildum þar sem veiran greindist.

Stöku tilfelli af inflúensu greinast oft að hausti áður en veiran fer að breiðast út í samfélaginu, sem er yfirleitt seinnipartinn í desember eða janúar. Í tilkynningu sóttvarnalæknis er tekið fram að þótt inflúensan greinist núna sé ekki líklegt að hún fari á flug fyrr en um áramótin í samræmi við faraldsfræði árlegrar inflúensu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert