Styrkur til Safetravel hækkaður í 40 milljónir

Í byrjun hvers sumars stendur Landsbjörg fyrir kynningu til ferðamanna …
Í byrjun hvers sumars stendur Landsbjörg fyrir kynningu til ferðamanna á Safetravel. Þá eru reknir upplýsingaskjáir og heimasíða sem miðla upplýsingum um færð og veður og aðrar hættur til ferðamanna. Til viðbótar er hálendisgæsla björgunarsveitanna undir merkjum Safetravel. mbl.is/Hari

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra hefur ákveðið að auka framlög til Landsbjargar fyrir verkefnið Safetravel í 40 milljónir á ári fyrir 2020 og 2021 og 35 milljónir árið 2022. Samkvæmt samningi ráðuneytisins við Landsbjörg fær verkefnið 25 milljónir á ári fyrir árin 2017-2020.

Í tilkynningu kemur fram að samningurinn hafi verið undirritaður af ráðherra, Landsbjörg og Samtökum ferðaþjónustu, en SAF veita 5 milljónir vegna verkefnisins.

„Markmiðið er að gera Landsbjörg kleift að viðhalda sínu góða starfi og leggja enn meiri áherslu á öryggi ferðamanna. Við viljum að allir sem heimsækja Ísland rati heim heilir og kátir með ferðina sína,“ er haft eftir Þórdísi.

Meginmarkmið Safetravel er að efla öryggismál og slysavarnir ferðamanna með því að skapa gott aðgengi fyrir ferðamenn og ferðaþjónustuaðila að upplýsingum um ábyrga ferðahegðun, umgengni um náttúru og aðstæður í landinu.

Verkefnum Safetravel hefur fjölgað á undanförnum árum. Árið 2017 gerðu Slysavarnafélagið Landsbjörg og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum ferðaþjónustunnar samning til þriggja ára sem þau hafa nú sammælst um að endurnýja til þriggja ára frá 2020.

Meðal þess sem samningurinn tekur til er upplýsingagjöf til ferðamanna í gegnum heimasíðuna safetravel.is, rekstur skjáupplýsingakerfis ferðamanna á lykilstöðum á landinu og hálendisvakt björgunarsveita. Þá verður einnig ráðist í gerð upplýsingaefnis fyrir ferðamenn, meðal annars örmyndbönd sem taka á hinum ýmsu öryggismálum sem ferðamenn þurfa að þekkja til að njóta ferðalagsins á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert