Kvan fékk Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna

Vanda Sigurgeirsdóttir, einn eigenda Kvan (t.v)., veitir verðlaununum viðtöku í …
Vanda Sigurgeirsdóttir, einn eigenda Kvan (t.v)., veitir verðlaununum viðtöku í hádeginu í dag. Með henni á myndinni er Valgerður Ólafsdóttir framkvæmdastjóri sjóðsins. Ljósmynd/Velferðarsjóður barna

Fyrirtækið Kvan fékk í dag afhent Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna fyrir námskeiðið Verkfærakistuna. Verðlaununum fylgir 11,25 milljóna króna styrkur til þess að niðurgreiða námskeiðið að hálfu fyrir 300 þátttakendur, en námskeiðinu er ætlað að færa kennurum og öðru fagfólki sem vinnur með börnum verkfæri til þess að takast á við einelti og einstaklinga sem glíma við erfið vandamál.

Verðlaunin voru afhent í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar í hádeginu í dag, en Velferðarsjóður barna er styrktarsjóður sem var stofnaður var árið 2000 með fjárframlagi frá fyrirtækinu. Markmið sjóðsins er að hlúa að velferð barna á Íslandi, meðal annars, með fjárframlögum til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála. Sjóðurinn hefur úthlutað um 1.100 milljónum til hagsmunamála barna frá stofnun.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sjóðurinn styrkir þetta námskeið Kvan, en árið 2017 styrkti sjóðurinn Verkfærakistuna um 10 milljónir króna.

Fjöldi annarra verkefna styrktur af sjóðnum

Í fréttatilkynningu frá sjóðnum kemur fram á ákvörðun hafi verið tekin um að styðja við fleiri verkefni. Arnarskóli, sem er sérskóli fyrir börn á einhverfurófi og með aðrar þroskaraskanir, fær fimm milljóna króna styrk til þess að stækka skólann. Skólinn var stofnaður 2017 en þá voru nemendur fjórir en eru nú tólf og biðlisti er eftir skólavist.

Aðrir sem sjóðurinn ákvað að styrkja á þessu ári eru meðal annars ungbarnaleikskólinn Krílasel í Breiðholti sem fékk 1,5 milljónir króna til framkvæmda á útisvæði og kaupa á þroskaleikföngum. Þá fékk Vinasetrið rúma 1 milljón til að styrkja börn til að sækja sumarnámskeið og Félag krabbameinssjúkra barna fékk 1 milljón til að nota í rannsókn á framtíðarhorfum barna með krabbamein.

Háteigsskóli fékk 550 þúsund krónur til að mæta kostnaði vegna vinaliðaverkefnis sem gengur út á að virkja nemendur sjálfa til að stuðla að virkni í frímínútum, styðja við þá sem eru út undan og vinna gegn einelti. Um 50 skólar á Íslandi taka þátt í verkefninu sem er að norskri fyrirmynd.

Hjálparstarf Kirkjunnar fékk 1 milljón til að greiða fyrir sumarnámskeið barna úr efnaminni fjölskyldum, Meðferðarheimilið á Laugalandi fékk 450 þúsund til að halda námskeið í kvikmyndagerð fyrir unglinga á heimilinu og þá fékk Einstök börn, stuðningsfélag barna með sjaldgæfa sjúkdóma 750 þúsund krónur.

Rannsóknarsjóður kvenna- og barnasviðs LSH fékk 1,5 milljónir og Mentorverkefnið fékk 100 þúsund krónur til að styrkja lokahátíð.

Þá styrkti sjóðurinn verkefnið Lokbrá um 1 milljón, en það er tölvuleikur sem á að undirbúa 4 til 6 ára börn undir svæfingu. ADHD samtökin fengu svo 500 þúsund krónur til að gera fræðsluefni ætlað íþrótta- og tómstundaleiðbeinendum barna.

Íþróttafélag fatlaðra fékk 1 milljón til að halda sumarbúðir fyrir börn og 300.000 krónur fóru til að styrkja útgáfu barnabókar um börn og krabbamein þar sem allir ágoði af sölunni rennur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Brúarskóli, sérhæfður skóli fyrir börn með hegðunarraskanir eða geðraskanir, fékk svo 1 milljón til að standa straum af sjálfsstyrkingarnámskeiði hjá Dale Carnegie.

Fram kemur í tilkynningu frá Velferðarsjóði barna að þetta sé aðeins hluti af úthlutunum ársins 2019, enda sé árið ekki liðið.

Stjórn Velferðarsjóðs barna skipa Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Ingibjörg Pálmadóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra og Valgerður Ólafsdóttir, sem jafnframt er framkvæmdastjóri sjóðsins. Í fagráði Velferðarsjóðs barna sem kemur með tillögur um úthlutanir sitja Þórólfur Þórlindsson, Grétar H. Gunnarsson, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Rósa Guðbjartsdóttir, Styrmir Gunnarsson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert