Bíll valt út af Hlíðarfjallsvegi ofan við Akureyri í morgun og voru ökumaður og farþegi fluttir á slysadeild með minni háttar áverka, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Mögulega má rekja slysið til aðstæðna, en það frysti norðanlands í nótt og segir lögreglumaður sem mbl.is ræðir við að rétt sé að vegfarendur hafi það í huga að hálka gæti myndast á fjallvegum nyrðra. Slydda var á Akureyri í morgun.