Grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi frá Reykjagarði

Kjúklingurinn er meðal annars seldur undir merkjum Krónunnar.
Kjúklingurinn er meðal annars seldur undir merkjum Krónunnar. mbl.is/Júlíus

Matvælastofnun vara við neyslu á tilteknum ferskum kjúklingi frá Reykjagarði seldum undir merkjum Holta, Kjörfugls og Krónunnar vegna gruns um salmonellu í tveimur lotum.

Dreifing á kjúklingnum hefur verið stöðvuð og stendur innköllun yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Innköllunin á við um heilan kjúkling, bringur, lundir, bita, læri með beini, úrbeinuð læri, leggi og vængi með lotunúmer 001-19-36-3-02 með pökkunardag 8.10 og 9.10 og Holta og Krónu bringur, læri í Krónuverslunum og í Costco merkt Holta, læri, leggir, lundir og úrbeinuð læri með lotunúmer 001-19-37-3-17 og pökkunardag 11.10.

Vörunum var dreift í Nettóverslanir um allt land, Krónuverslanir um allt land, Kjörbúðina um allt land, Iceland Akureyri, 10-11 Laugaveg og Barónsstíg, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Olís Varmahlíð og Costco.

Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir að skila inn vörunni í viðkomandi verslun eða beint til Reykjagarðs Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.

Tekið skal fram að ef áprentuðum leiðbeiningum á umbúðum er fylgt og kjúklingurinn steiktur í gegn þá er hann hættulaus neytendum. Tryggja þarf að blóðvökvi komist ekki í aðra matvöru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert