Í gæsluvarðhald grunaður um kynferðisbrot

mbl.is/Eggert

Karlmaður á fertugsaldri var á laugardag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald, eða til 18. október, á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Þetta var gert að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á ætluðu kynferðisbroti, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Maðurinn var handtekinn í heimahúsi í umdæminu um helgina eftir að tilkynning barst um málið.

Að sögn lögreglu er ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert