Malbikað á Reykjanesbraut í dag

Stefnt er að því að malbika hægri akrein og öxl …
Stefnt er að því að malbika hægri akrein og öxl til vesturs á Reykjanesbraut, frá Njarðvíkurbraut að Fitjum, í dag ef veður leyfir. Mynd úr safni. mbl.is/​Hari

Stefnt er að því að malbika hægri akrein og öxl til vesturs á Reykjanesbraut í dag, frá Njarðvíkurbraut að Fitjum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 9 til 18. 

Akreininni verður lokað og viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert