Maðurinn sem lýst var eftir fundinn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Stefáni Guðbrandssyni, 27 ára. Talið er að hann sé klæddur í svartan jakka og dökkar buxur og ljósgráa hettupeysu. Stefán, sem er grannvaxinn, er 80 kg og 190 sm á hæð, er með blágrá augu og skollitað hár og skeggjaður.

Síðast er vitað um ferðir hans við Gömlu-Hringbraut um klukkan 11:00 í gærdag, þriðjudaginn 14. október. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Stefáns eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Uppfært kl. 18:55: Stefán er fundinn heill á húfi og þakkar lögregla veitta aðstoð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert