Árni Gils dæmdur í fjögurra ára fangelsi á ný

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu í annað sinn …
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu í annað sinn í gær. mbl.is/Þór

Árni Gils Hjaltason hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, en dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Fréttablaðið greinir frá þessu, en dómur í málinu hefur ekki verið birtur.

Árni Gils hafði áður hlotið jafn þungan dóm í héraði fyrir sama mál en Hæstiréttur felldi dóminn úr gildi og sagði að málið hefði ekki verið nægilega vel rannsakað til þess að hægt væri að kveða upp dóm í málinu. Nú hefur hann verið sakfelldur að nýju, fyrir að hafa stungið annan mann í höfuðið með hnífi við Leifasjoppu í Breiðholti í mars árið 2017.

Aðalmeðferð í málinu fór fram að nýju í september, en fyrr á árinu hafði verið tekist á um matsgerðir Sebastian Kunz meinafræðings, en farið var fram á það af hálfu Árna Gils að annar matsmaður yrði fenginn til þess að meta málið þar sem Kunz hefði gert sig vanhæfan til þess. Þeirri kröfu var hafnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert