Með um 100 pakkningar innvortis

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum handtók fyrr í mánuðinum erlendan karlmann á sextugsaldri sem hafði reynt að smygla um einu kílói af hassi til landsins. Maðurinn var að koma með flugi frá Madrid og stöðvaði tollgæslan hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum gekkst maðurinn strax við broti sínu, en hassið var í um það bil hundrað pakkningum sem hann hafði komið fyrir innvortis og svo innan klæða.

 Maðurinn var vistaður í fangaklefa á lögreglustöð þar sem hann skilaði af sér pakkningunum sem hann hafði innvortis.

Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald og síðan til að sæta tilkynningaskyldu til 22. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert