Þjónusta verði ekki veitt af áhugamönnum

Áhugamannafélag á borð við SÍBS á ekki að stýra stofnun sem veitir þjónustu sem greidd er af almannafé. Faglegt starf á Reykjalundi er í uppnámi og áhugaleysi forsvarsmanna SÍBS á starfseminni hefur verið viðvarandi.

Þetta kemur fram í ályktun Félags  íslenskra endurhæfingarlækna sem félagið sendi frá sér eftir fjölmennan félagsfund fyrr í dag. Þar eru vinnubrögð stjórnarformanns og varaformanns stjórnar SÍBS, sem á og rekur Reykjalund, gagnvart forstjóra og framkvæmdastjóra Reykjalundar með fyrirvaralausum uppsögnum fordæmd. 

„Háttsemin hefur markast af hroka og virðingarleysi gagnvart einstaklingum og skilningsleysi á mikilvægi þeirrar starfsemi sem fram fer á Reykjalundi. Fjarlægð og áhugaleysi forsvarsmanna SÍBS gagnvart starfseminni hefur verið viðvarandi um langt skeið, m.a. vegna viðhorfa sem snúast meira um fjármuni en gæði og mikilvægi þjónustunnar. Það litla traust sem fyrir var á stjórn SÍBS er að engu orðið í kjölfar þessara atburða,“ segir í yfirlýsingu Félags íslenskra endurhæfingarlækna

Þar segir ennfremur að það veki furðu að í auglýsingu um starf framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi hafi ekki verið gerð krafa um sérfræðileyfi í endurhæfingarlækningum. „Framkvæmdastjóri lækninga ber faglega ábyrgð  læknisfræðilegri endurhæfingu og er því með miklum ólíkindum að á stofnun sem er stærsta endurhæfingarstofnun landsins sé ekki gerð krafa um sérfræðimenntun í endurhæfingarlækningum,“ segir í yfirlýsingunni.

Faglegt starf í uppnámi

Í yfirlýsingunni er lýst yfir þeirri skoðun að áhugamannafélög og sjúklingasamtök séu ekki til þess fallin að stýra heilbrigðisstofnun sem veitir þjónustu sem greidd er af almannafé. „Háttalag stjórnar SÍBS styður þá skoðun og setur í uppnám áratuga faglegt uppbyggingarstarf á Reykjalundi. Jafnframt vill félagið benda á nýlegt dæmi frá Heilsustofnun NLFÍ þar sem lækni, sem gegndi starfi yfirlæknis og framkvæmdastjóra, var sagt upp fyrirvaralaust vegna ábendinga hans um óeðlilega ráðstöfun fjármuna stofnunar sem nýtur framlags úr ríkissjóði. Hér er um að ræða mikilvæg hagsmunamál almennings sem koma verður í betri farveg,“ segir í yfirlýsingunni.

Áhyggjur af framtíðinni

„Félagið hefur verulegar áhyggjur af framtíð endurhæfingarlækninga á Íslandi. Mikill skortur er á endurhæfingarlæknum og ef flótti verður frá stærstu endurhæfingarstofnun landsins mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir þróun endurhæfingarþjónustu á Íslandi,“ segir í lokin. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert