Höfðingleg gjöf á afmæli Listasafnsins

Harpa Þórsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra …
Harpa Þórsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Eva Egesborg Hansen sendiherra Danmerkur á Íslandi. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Listasafn Íslands var stofnað 16. október 1884 og fagnaði því 135 ára afmæli í vikunni. Af því tilefni heimsótti Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, safnið og tók m.a. á móti rausnarlegri gjöf frá Dönum til íslensku þjóðarinnar.

Það var danski sendiherrann á Íslandi, Eva Egesborg Hansen, sem afhenti ráðherra gjafabréf frá Ingrid Nielsen í Kaupmannahöfn til Listasafns Íslands, en gjöfin eru 18 verk eftir alþýðulistamanninn Sölva Helgason.

„Við þökkum kærlega fyrir höfðinglega gjöf og fögnum því að þessi verk Sölva Helgasonar komist í eigu þjóðarinnar. Sólon Íslandus óraði líklega ekki fyrir því að sköpunarkraftur hans og listfengi myndi gleðja svo margar kynslóðir Íslendinga og verða partur af okkar mikilvæga menningararfi,“ sagði Lilja.

Föðuramma Ingridar Nielsen eignaðist pappírsverkin eftir Sölva þegar hún vann í verslun Popp kaupmanns á Sauðárkróki snemma á síðustu öld og var það ósk frú Nielsen að verkin yrðu afhent þjóðlistasafni Íslendinga. Það var því einkar viðeigandi að afhendingin færi fram á afmælisdegi Listasafns Íslands. Gjöfin verður til sýnis í anddyri safnsins í nokkra daga en fyrirhugað er að lána Safnasafninu á Svalbarðseyri verkin á sýningu þess á næsta ári þegar 200 ár verða liðin frá fæðingu Sölva Helgasonar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert